Austurbæjarbíó – Hús unga fólksins!
Austurbæjarbíó - Hús Unga Fólksins opnar formlega þriðjudaginn 9. júní. Húsið verður miðstöð ungs fólks sem vill virkja krafta sína í hvetjandi umhverfi.
Markmið miðstöðvarinnar er að bjóða ungu fólki upp á aðstöðu og aðstoð við framkvæmd hugmynda sinna. Virkir þátttakenndur hússins móta fjölbreytta dagskrá sumarsins og sköpunarkraftar þeirra verða nýttir við andlitslyftingu á Austurbæjarbíó. Auk þess verður boðið upp á hressingu og gefst tækifæri til að sýna sig og sjá aðra. Haft verður að leiðarljósi að skapa vettvang þar sem öllum er frjálst að koma á sínum eigin forsendum og taka þátt í að skapa sér skemmtilegt sumar.
Tveir sjóðir hafa verið stofnaðir og hægt er að sækja um styrki úr þeim til að koma verkefnum af stað.
Þeir aðilar sem standa að opnun Austurbæjarbíós eru Samfélagið Frumkvæði ( frumkvaedi.is ), Hitt Húsið, Rauði Krossinn í Reykjavík, Lýðheilsustöð og Samband Íslenskra Framhaldsskólanema.
Opnunarhátíð fer fram með pomp og prakt þriðjudaginn 9. júní og mun skrúðganga fara af stað kl. 18 frá klukkunni á Lækjartorgi. Leiðin liggur upp í Austurbæjarbíó þar sem tekið verður á móti gestum með grillpartýi, kynningu á starfi hússins og ýmsum tónlistaratriðum. Við hvetjum alla til að mæta og fagna opnun Austurbæjarbíós!
Hér má nálgast viðburðin á facebook
Hlökkum til að sjá þig og vini þína!
Skrifaðu ummæli
Þú verður að vera skráð/ur inn til að skrifa ummæli.