Samfélags-póstur 2 !
Samfélagið Frumkvæði hefur nýlega fengið þær gleðifregnir að Austurbær verði í sumar nýttur sem miðstöð fyrir ungt fólk. Munu nokkrir aðilar og samtök koma þarna saman, því augljóst er að endurbætur og endurreisn þessa sögufræga húss mun krefjast krafta margra. Og hvetjum við því alla sem vettlingi geta valdið að kíkja við og leggja hönd á plóg. En nú þegar eru kominn í verkefnið Samfélagið Frumkvæði, Reykjavíkurborg, Rauði Krossin, Menntamálaráðuneytið, Samband íslenskra framhaldsskólanema, Lýðheilsustöð en svo vantar bara þig !
Austurbæjarbíó mun verða vettvangur ungsfólk til að koma verkefnum í framkvæmd og taka þátt í lifandi samfélagi sem myndast mun í kringum húsnæðið og hlakkar okkur til að sjá sem flesta taka þátt. Hvort sem er til að framkvæma hugmyndir, taka þátt í verkefnum einsog t.d leiksýningum, námskeiðum eða bara að drekka kaffi og hafa gaman með öðru fólki. En vinnan við endurbætur er nú þegar hafinn og verður húsið formlega opnað næstkomandi Þriðjudag ( 9. Júní ) með pompi og prakt og verða þar tónleikar, grill og fleira skemmtilegt.
Á miðvikudag voru einnig veittir styrkir úr Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar. Samstarfs hópurinn sem stendur á bakvið opnun Austurbæjarbíós hlaut þar 5miljón króna styrk sem verður nýttur með beinum hætti til verkefna sem koma frá ungu fólki sem ekki eru með atvinnu. Stofnaður verður sjóður þar sem ungt atvinnulaust fólk getur sótt um fjármagn til að koma Hugmyndum sýnu í framkvæmd.
Frekari upplýsingar um hvernig sækja eigi um í sjóðinn verða veittar síðar!
Samfélagið Frumkvæði efnir til Samfélags panel sem verður vettvangur þar sem allir geta komið saman og rætt komandi sumar. Fundurinn verður haldinn með lauslegu viðmóti og er öllum frjálst að mæta! Fundurinn verður: Í Austurbæ klukkan 16:00 næstkomandi Miðvikudag og mun standa yfir í sirka klukkustund.
http://www.facebook.com/inbox/?ref=mb#/event.php?eid=101148928680&ref=mf
Okkur hlakkar til að sjá þig í sumar!
Samfélagið Frumkvæði.
Skrifaðu ummæli
Þú verður að vera skráð/ur inn til að skrifa ummæli.